Feeds:
Færslur
Athugasemdir

Las í gegnum þetta

Tók mig til og las í gegn um allt þetta blessaða blogg mitt.  Hafði gaman af.

Blundar í mér að taka þráðinn upp aftur; þó með öðrum formerkjum.

Ást og friður

Þrettán góðar ástæður

Flug

Cessna1Ég hef lengi haft sérlega gaman að horfa á flugvélar.  Ég geri mér annað slagið ferð út á flugvöll til að horfa á þessi undur, sem geta svifið um loftn blá, knúin áfram af litlum mótor.  Þetta eru mögnuð fyrirbæri.

Eins hef ég annað slagið bitið það í mig að skella mér í einkaflugmanninn, en ekki enn stigið skrefið.  Kannski kemur að því einn daginn.

Mér líst sérlega vel á Flugskóla Geirfugls, hef verið svo heppinn að fá að kíkja þangað og faríð í flug með einum Gerifuglinum, það var hrikalega gaman.

Þetta er algjör draumur maður.

Nigel Kennedy

Nigel_KennedyÉg hlusta á nánast alla tónlist og um þessar mundir er ég afskaplega upptekinn af því að leyfa eyranu að gæða sér á fiðlusnillingnum Nigel Kennedy.

Flutningur hans á alls konar tónlist, hvort heldur sem er Vivaldi, Jim Hendrix eða Jazz, þá er það algjör vítamínsprauta fyrir mig í vinnunni.

Ég heyrði í honum fyrst í kring um 1995, heillaðist þá af kraftinum sem hann lagði í Árstíðirnar eftir Vivaldi.  Hef svo fylgst með honum síðan þá.

Hann er snillingur.

Ég hef gaman að flestri tónlist.  Popp, rokk, kántrí, jazz, klassík og hvað þetta allt heitir.  Þykir ósköp gott að útiloka umhverfið í kring um mig með tólnist þegar ég er að vinna.

Ég hef haft nokkuð gaman af ammrísku rokki t.d. Lynyrd Skynyrd, um daginn rann einhver katalógur þeirra áreynslulaust í gegn um hausinn, en ég fór allt í einu að hlusta á texta í einu lagi, og þvílík og önnureins hálvitasteypa.  Mér blöskraði, súrara verður það varla.  Lagið er fínt en textinn algjört krapp – þetta segir líklega margt um hugsunarháttinn hjá þeim í Ammríkuhreppi.

GOD & GUNS
Last night I heard this politician
Talking ’bout his brand new mission
‘Liked his plans, but they came undone when he got around with God and guns

I don’t know how he grew up
But it sure wasn’t down at the hunting club
Cause if it was he’d understand a little bit more about the working man

God and guns
Keep us strong
That’s what this country
Was founded on
Well we might as well give up and run
If we let them take our God and guns

I’m here in my back of the woods
Where God is great and guns are good
You really can’t know that much about ’em
If you think we’re better off without ’em

Well there was a time we ain’t forgot
You caressed all night with the doors unlocked
But there ain’t nobody save no more
So you say your prayers and you thank the lord

For that peacemaker
In the dresser drawer

God and guns (God and guns)
Keep us strong
That’s what this country, lord
Was founded on
Well we might as well give up and run,
If we let ‘m take our God and guns.
Yea we might as well give up and run,
If we let ‘m take our God and guns!

Yeah
Oh
God and guns

Don’t let ’em take
Don’t you let ’em take
Don’t let ’em take
Our God and guns

Oh God and guns
Ye keep us strong
That’s what this country, lord
Was founded on
Well we might as well give up and run,
If we let ‘m take our God and guns!

Wohoho
God and guns
Wohohoo
Oh

49IMG_5071Ég hef ekki fundið neina þörf til bloggskrifa í mjög langan tíma.  Ekki það að ekkert hafi gerst síðan síðast – nei, það er eitthvað annað og óskiljanlegt.

Þessi síða snérist í langan tíma um að halda til haga „afrekum“ mínum í hlaupum.  Nú er svo komið að formið og hreyfiþörfin er á svipuðum stað og 2010 þegar ég tók upp á því, feitur maðurinn, að skokka.  Til að afsaka þetta í botn þá byrjaði þetta á tognun í fót.  Þegar það var að lagast þá tók við brjósklos í baki sem að sögn lækna er „ekkert hægt að gera við“, best að láta líkamann sjá um þetta sjálfan.   Þrátt fyrir ýmiskonar teygjur og tog hefur lítið gerst, ég er enn með verki en þeir eru ekki jafn slæmir og fyrir ári eða svo. En við þetta allt fór hausinn í fýlu og ég með.

En annars en nú bara allt gott að frétta.  Við skruppum í smá frí til Roquetas de Mar í Almeríu, dásamlegur staður, hiti, sól, sjór og sandur. Fórum þangaði í fyrra líka.

Svo höfum við verið að spá í hvenær við ættum að taka meira sumarfrí, en ekki ákveðið neitt.  Okkur dettur eitthvað sniðugt í hug.

Sem sagt allt gott að frétta fyrri utan þetta bakves.

Jú, svo er rétt að halda því til haga að nýr forseti tekur við keflinu í dag.  Guðni Th Jóhannesson verður settur í embætti seinnipartinn í dag.  Það er alveg tilefni til að skunda á Austurvöll hrópa húrra fyrir honum.

Draumalandið

draumalandidÉg held að við ættum að draga Draumalandið hans Andra Snæs og lesa það … aftur.

Síðan væri ráð að lesa það aftur og aftur og aftur.

Okkur veitir ekki af.

 

Smá fokk

Human backBakið örlítið betra.  Langar samt til að væla annað slagið.

Þetta er fokk.