Helstu áhugamál mín eru hlaup, hjólreiðar, fluguveiði, skotveiði, ganga og ferðalög hverskonar. Það er fátt sem toppar bakpokaferð með góðum vinum um fallegt svæði, líkt og Hornstrandir. Nú eða vera einn með stöngina útí vatni eða á. Ganga til rjúpna í fallegu umhverfi eða liggja fyrir gæs og önd með góðum vinum. Taka hjólið fram og þeysast um víðan völl. Allt þetta kallar fram ullarsokkinn í manni.
Orð Laxness um hamingjuna vil ég gera að mínum, hafi ég rétt til þess (Sjálfstætt fólk 1934).
“… og þetta er hamingjan sjálf: að bíða í eftirvæntingu komandi dags.”
Kærasta mín er Kristín Helga Pétursdóttir. Við eigum einn ungling.
