Það er bara brostið á með helgi rétt eina ferðina og svo sem ekkert við það að athuga.
Við stefnum á að fjáröflunarvinnu á morgun – gaurinn fer með öðrum flokki FH til Portúgals svo það er eins gott að bretta upp ermar og búa til aura. Sunnudagurinn verður meira í rólegheitum. Það verður dregið í hreindýrahappdrættinu á morgun. Ég sótti um dýr á svæði tvö og svæði sex til vara. Maður fylgist með þessu. Spenntur. Það hlýtur að vera komið að mér núna – ég trúi bara ekki öðru.
Ég mætti á Atlantsolíuhlaupið í gær og var í gæslu. Það var mjög gaman að taka þátt hinumegin. Aðstæður voru mjög góðar og sæmilegur fjöldi tók þátt. Kári Steinn sigraði og það var frábært að sjá hann hlaupa. Ótrúlegur strákurinn.
Gísli mágur að fara í ævintýraferð til Karabíska hafsins. Ég ætla nú ekki að segja að ég öfundi hann neitt. Langt flug, hiti og bara vesen, en ég óska þess að hann skemmti sér vel. Hvern er ég eiginlega að plata? Þetta verður klikkað hjá honum. Taumlaust stuð. Vona bara að hann taki nú einhverjar myndir. GO-GO-GO!
Næst verða sagðar fréttir.