Ég er búinn að vera ljómandi góður í dag, bæði í baki og fót. Ákvað því að vera rólegur og spakur út þessa viku, sleppa öllu sem heitir hlaupum og slíku sprelli – tel mér trú um að ég sé að gera mér gott með þessari leti. En ætla að mæta á Atlantsolíuhlaupið á morgun og standa vaktina með hressu fólki.
Höfum verið að dunda okkur við að horfa á Lord of the Rings myndirnar, tökum tvö kvöld í hverja mynd. Kláruðum TheTwoTowers í gær. Svo er Hjarta mannsins á náttborðinu.
Ekki nema það þó.