Ég er búinn að vera með heilhveitis hausverk í allan dag. Ástæðan er líklegast sú að ég var andvaka bróðurpart síðustu nætur. Ég er búinn að gleypa nokkrar verkjatöflur en allt kemur fyrir ekki. Þrautalengingin verður að skríða snemma upp í rúm.
Ég er byrjaður á Himnaríki og helvíti, aftur. Ég fékk nefnilega Hjarta mannsins í jólagjöf og lofaði mér því að lesa fyrri bækurnar aftur áður en ég byrjaði á lokakaflanum. Ég hlakka til að eiga góðar stundir með stráknum.
Ég kláraði Harry Potter séríuna í fyrradag. Síðasta bókin var mjög góð, dálítið langdregin að vísu, en engu að síður góð. Næst á dagskránni er að horfa á myndirnar.
Allt á kafi í snjó – veit hreinlega ekki hvort ég sé maður í að sperra mig í einhverju keppnishlaupi á morgun. Kemur í ljós.
Ég sá í Fréttablaðinu að höfundur og leikstjóri “Tríós” sé hættur við að skrifa seríu tvö. Ég þakka honum fyrir það.