Það snjóar og snjóar og snjóar og snjóar. Ég er alveg sáttur við það að öllu leyti nema því að það er lítið spennandi að hlaupa úti í þæfings færð á stígum sem hafa verið ruddir en kannski ekkert sérlega vel. Þá freistar manns að kaupa sér tíma eða kort í skrokkstöð þar sem maður getur hlaupið, eins og hamstur, á bretti í stað þess að pjakkast áfram, ögn pirraður á köflum, í þungri og erfiðri færð. En það er vetur, 24. janúar, þorrinn rétt byrjaður.
Ég mætti sem sagt upp í Kapla fyrir hálf fimm í dag, með gormana á fótunum. Mætingin var alveg ágæt, miðað við allt. Uppleggið var að hlaupa 5-8 km. Hrönn Árna fór með hópinn í Setbergshring, og ég er ekki að djóka, þegar ég segi að færðin hafi verið slæm, hún var arfaslæm. Við hlupum og skakklöppuðumst þetta ósköp rólega - á rúmum þrjátíuogsexmínútum. Hringurinn er rétt tæpir 5 km.
Á fimmtudaginn er fyrsta hlaupið í hlaupaseríu Atlantsolíu og FH. Ef færðin verður svona sjúkleg, ætla ég að sjá til.